Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018

Úrskurður velferðarráðuneytisins

Fimmtudaginn 12. desember 2013 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

 

ú r s k u r ð u r:

Með erindi til velferðarráðuneytisins, dags. 27. mars 2013, kærðu Ada ehf., kt. 430407-1550, og  […], fd. […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. mars 2013, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […], sem er ríkisborgari í Kosóvó, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Ada ehf.

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […], sem er ríkisborgari í Kosóvó, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Ada ehf. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sbr. a-lið 1. mgr. 7. gr. sömu laga.

Þeirri ákvörðun vildu kærendur ekki una og kærðu hana til ráðuneytisins. Í erindi kærenda kemur meðal annars fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi óski eftir því að umræddur útlendingur fái heimild til að gegna áfram því starfi sem hann gegni hjá því félagi sem hér um ræðir þar sem ekki hafi tekist að finna annan starfsmann til að gegna starfinu þrátt fyrir leit að slíkum starfsmanni.

Erindið var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 3. maí 2013. Í fyrrnefndu bréfi ráðuneytisins óskaði ráðuneytið jafnframt eftir upplýsingum um hvort Vinnumálastofnun hefði áður veitt umræddum útlendingi atvinnuleyfi hér á landi í því skyni að ráða sig til starfa hjá því félagi sem hér um ræðir í ljósi þess að í erindi kærenda til ráðuneytisins hafi komið fram að umræddur útlendingur gegndi þegar því starfi sem um ræðir í máli þessu.

Í umsögn sinni, dags. 11. júní 2013, ítrekar Vinnumálastofnun afstöðu sína til málsins sem fram kemur í synjunarbréfi stofnunarinnar, dags. 7. mars 2013, þess efnis að samkvæmt lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sé heimilt að veita ríkisborgurum ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins tímabundin atvinnuleyfi til að gegna störfum hér á landi að uppfylltum tilteknum skilyrðum, svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innanlands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Bendir stofnunin á að innlendur vinnumarkaður sé hluti af sameiginlegum vinnumarkaði innan Evrópska efnahagssvæðisins á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Samkvæmt ákvæðum laga nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, þurfi ríkisborgarar aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið ekki atvinnuleyfi hér á landi auk þess sem þeir njóti forgangs að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði fram yfir ríkisborgara annarra ríkja.

Tekið er fram að áður en Vinnumálastofnun geti veitt tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli beri atvinnurekanda því að hafa óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki, meðal annars með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, nema slík leit hafi verið fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar. Að mati Vinnumálastofnunar hafi umrædd skilyrði ekki verið uppfyllt í máli þessu.

Enn fremur tekur stofnunin fram að samkvæmt upplýsingum frá Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, hafi hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsmanni í umrætt starf en vinnumiðlunin telji að auðvelt sé að finna starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu til að gegna starfinu. Því telji Vinnumálastofnun ekki fullreynt að ráða einstakling í starfið sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði. Auk þess telur Vinnumálastofnun að hafa verði hliðsjón af stöðunni á innlendum og evrópskum vinnumarkaði.

Jafnframt bendir stofnunin á að íslensk stjórnvöld hafi áréttað þær skuldbindingar sem felast í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið um forgang ríkisborgara ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins umfram ríkisborgara ríkja utan svæðisins til starfa hér á landi. Stofnunin vísar í þessu sambandi til úrskurða félags- og tryggingamálaráðuneytisins, síðar velferðarráðuneytisins, sem kveðnir hafa verið upp frá því í september 2005 þar sem komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að þegar kærendur hafi ekki óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki hafi ekki þótt fullreynt að ráða ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þar með hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að ráða viðkomandi útlendinga til starfa. Fram kemur að stofnunin telur að umræddir úrskurðir hafi fordæmisgildi í því máli sem hér um ræðir.

Þá kemur fram að í ljósi þess sem að framan greinir og stefnu stjórnvalda telji Vinnumálastofnun ekki heimilt að veita tímabundin atvinnuleyfi til handa útlendingum sem eru ríkisborgarar ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins nema mjög ríkar ástæður séu fyrir hendi. Með tilliti til vinnumarkaðssjónarmiða telji stofnunin slíkar ástæður ekki hafa verið fyrir hendi í máli þessu.

Með vísan til framangreinds telji Vinnumálastofnun að ákvörðun stofnunarinnar um synjun um tímabundið atvinnuleyfi til handa umræddum útlendingi skuli standa.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur jafnframt fram að umræddur útlendingur hafi fram til þessa verið undanþeginn kröfu um tímabundið atvinnuleyfi hér á landi sem maki íslensks ríkisborgara en til skilnaðar hafi komið og því hafi verið sótt um umrætt atvinnuleyfi hér á landi.

Með bréfum ráðuneytisins, dags. 18. júní 2013, annars vegar til umrædds útlendings og hins vegar til hlutaðeigandi atvinnurekanda, var kærendum gefinn kostur á að koma á framfæri við ráðuneytið athugasemdum sínum vegna umsagnar Vinnumálastofnunar og var frestur veittur til 3. júlí sama ár.

Jafnframt sendi ráðuneytið bréf til hlutaðeigandi atvinnurekanda, dags. 20. júní 2013, þar sem óskað var eftir upplýsingum um með hvaða hætti reynt hefði verið að ráða starfsmann í það starf sem hér um ræðir sem þegar hefði aðgengi að innlendum vinnumarkaði en fram kæmi í umsögn Vinnumálastofnunar að ekki hefði verið óskað eftir aðstoð stofnunarinnar, þar á meðal Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, við leit að starfsmanni í umrætt starf. Óskað var eftir að umræddar upplýsingar bærust ráðuneytinu fyrir 3. júlí 2013.

Þar sem bréf ráðuneytisins til umrædds útlendings, dags. 18. júní 2013, var endursent til ráðuneytisins hafði starfsmaður ráðuneytisins samband símleiðis við hlutaðeigandi atvinnurekanda 2. júlí sama ár í því skyni að fá upplýsingar um rétt heimilisfang umrædds útlendings hér á landi svo unnt væri að senda honum fyrrnefnt bréf ráðuneytisins. Ekki náðist í hlutaðeigandi atvinnurekanda en sá starfsmaður hlutaðeigandi atvinnurekanda sem svaraði símtali starfsmanns ráðuneytisins veitti upplýsingar um símanúmer umrædds útlendings hér á landi. Í kjölfarið hafði starfsmaður ráðuneytisins samband símleiðis við umræddan útlending. Í símtalinu kom meðal annars fram að rétt heimilisfang umrædds útlendings væri skráð hjá ráðuneytinu. Í ljósi þess að bréf ráðuneytisins til umrædds útlendings hafði þrátt fyrir það verið endursent til ráðuneytisins veitti útlendingurinn starfsmanni ráðuneytisins upplýsingar um netfang sitt svo unnt væri að senda honum afrit af bréfi ráðuneytisins með rafrænum hætti. Í kjölfar símtalsins eða 3. júlí 2013 var afrit af bréfi ráðuneytisins til umrædds útlendings, dags. 18. júní 2013, sent honum með rafrænum hætti auk þess sem frestur til að koma athugasemdum við umsögn Vinnumálastofnunar til ráðuneytisins var lengdur til 17. júlí sama ár í ljósi þeirra tafa sem höfðu orðið á því að honum bærist fyrrnefnt bréf ráðuneytisins.

Þar sem ráðuneytinu barst ekki svar frá kærendum við framangreindum bréfum ráðuneytisins fyrir tilgreinda tímafresti sendi ráðuneytið bréf, dags. 13. ágúst 2013, annars vegar til umrædds útlendings og hins vegar til hlutaðeigandi atvinnurekanda, þar sem upplýst var að ráðuneytið tæki málið til efnislegrar afgreiðslu hefðu athugasemdir sem og umbeðnar upplýsingar ekki borist ráðuneytinu fyrir 20. ágúst sama ár. Jafnframt var afrit af bréfi ráðuneytisins til umrædds útlendings sent honum með rafrænum hætti þann 15. ágúst 2013.

Engar frekari athugasemdir eða upplýsingar bárust frá kærendum og er málið því tekið til efnislegrar afgreiðslu.

II. Niðurstaða.

Samkvæmt 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfis til velferðarráðuneytisins. Í máli þessu er kærð ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. mars 2013, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli sem sótt hafði verið um á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga á innlendum vinnumarkaði eru veitt í samræmi við lög um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, reglugerðir sem settar eru með heimild í þeim lögum og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra. Samkvæmt 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum eða Færeyjum. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæðinu eru meðal annars að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna er það skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað eftir starfsfólki með aðstoð Vinnumálastofnunar nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar.

Í athugasemdum við 7. gr. a. frumvarps þess er varð að gildandi 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1997, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, kemur fram að ákvæðið fjalli um tímabundið atvinnuleyfi sem ætlað er að mæta tímabundnum sveiflum í íslensku atvinnulífi. Gert sé „ráð fyrir að einungis reyni á ákvæði þetta við sérstakar aðstæður enda mikil áhersla lögð á að atvinnurekendur leiti fyrst eftir starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins. Áfram er því gert ráð fyrir því að atvinnurekandi þurfi að færa sérstök rök fyrir nauðsyn þess að ráða til sín erlent starfsfólk frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins enda verði höfð hliðsjón af aðstæðum á innlendum vinnumarkaði við veitingu atvinnuleyfa sem og hvort vinnuafl fáist frá aðildarríkjum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, EFTA-ríkjum eða Færeyjum. Er gert ráð fyrir að ríkar kröfur verði gerðar til atvinnurekanda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði en mat á þörf eftir vinnuafli verður áfram á ábyrgð Vinnumálastofnunar.“ Er jafnframt vísað til athugasemda við 5. gr. frumvarpsins er varð að gildandi 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum. Þar er tekið fram að atvinnurekandi verði að gera grein fyrir þeim tilraunum sem hann hafi gert til að ráða fólk sem þegar hafi aðgengi að innlendum vinnumarkaði auk þess sem áhersla er lögð á að atvinnurekendur leiti fyrst eftir starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með aðstoð Vinnumálastofnunar með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, áður en leitað er út fyrir svæðið eftir starfsfólki. Þá segir að það falli „í hlut Vinnumálastofnunar að kanna sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt hvert atvinnuástandið innan lands er á hverjum tíma og hvort útséð er um að vinnuafl fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, frá EFTA-ríkjum eða Færeyjum, sbr. a-lið 1. mgr. ákvæðis þessa, enda hlutverk stofnunarinnar að fylgjast með atvinnuástandi í landinu í því skyni að koma í veg fyrir atvinnuleysi eins og frekast er unnt.“

Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, má því ráða að mat Vinnumálastofnunar á því hvort skilyrði ákvæðisins fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa séu uppfyllt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni sem og hvort starfsfólk fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis. Beiðni um aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði er því lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis enda telji stofnunin leitina ekki fyrirsjáanlega árangurslausa.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig 2. gr. sömu laga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.–30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 492/2011/ESB, um frjálsa för launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem tekið hefur gildi hér á landi, sbr. lög nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til starfa á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins sama aðgang og íslenskir ríkisborgarar hafa að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði og þar með forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að þeim störfum.

Það er því jafnframt lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, að atvinnurekandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures ,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innanlands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, eiga við og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis að hlutaðeigandi atvinnurekandi hefði áður óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki. Verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar þess efnis að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að óska eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsmanni á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum. Að mati ráðuneytisins á það ekki síst við í ljósi þess hvers konar starf um er að ræða í máli þessu. Í því sambandi skal bent á að í febrúar 2013 voru að meðaltali 8.715 einstaklingar skráðir á atvinnuleysisskrá hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sbr. skýrslu stofnunarinnar um stöðu á vinnumarkaði nr. 2/2013, en það jafngildir því að skráð atvinnuleysi hafi verið 5,5% á þeim tíma. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 5,9% sem svarar til 5.966 einstaklinga að meðaltali.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur jafnframt fram að Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, telji að auðvelt sé að finna starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu til að gegna því starfi sem hér um ræðir en samkvæmt upplýsingum frá vinnumiðluninni hafi hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsmanni í umrætt starf. Því hefur hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki mótmælt. Þá hefur hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki veitt ráðuneytinu upplýsingar um með hvaða hætti reynt hafi verið að ráða starfsmann í það starf sem hér um ræðir sem þegar hefði aðgengi að innlendum vinnumarkaði þrátt fyrir ítrekaða beiðni ráðuneytisins um slíkar upplýsingar, sbr. bréf ráðuneytisins til hlutaðeigandi atvinnurekanda, dags. 20. júní og 13. ágúst 2013. Það er mat ráðuneytisins að í máli þessu gildi hið lögbundna skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis þess efnis að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að reyna til hlítar að ráða starfsmann í umrætt starf sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði með því að óska eftir aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsmanni, þar á meðal með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, áður en unnt hafi verið að veita umræddum útlendingi tímabundið atvinnuleyfi þar sem leit að starfsmanni sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði hafi ekki borið árangur.

Við framkvæmd laga um atvinnuréttindi útlendinga hefur verið lögð áhersla á mikilvægi þess að viðhaldið sé jafnvægi milli framboðs á vinnuafli og eftirspurnar eftir því á innlendum vinnumarkaði. Er því jafnframt þýðingarmikið að horfa til þeirra langtímaáhrifa sem útgáfa tímabundinna atvinnuleyfa getur haft á jafnvægi á vinnumarkaði. Ljóst er að aðstæður á innlendum vinnumarkaði breyttust mjög hratt á haustmánuðum 2008 þegar skráð atvinnuleysi jókst umtalsvert. Í því sambandi má nefna að skráð atvinnuleysi fór úr 1,3% í september 2008 í 6,6% í janúar 2009 og hélt skráð atvinnuleysi áfram að aukast hér á landi þar til það mældist 9,3% í febrúar og mars 2010. Nokkrar sveiflur voru á skráðu atvinnuleysi á þessu tímabili og fram til þess tíma er Vinnumálastofnun tók ákvörðun um að synja umræddum útlendingi um tímabundið atvinnuleyfi hér á landi og mældist það lægst 4,7% í júlí 2012. Í október 2013 var skráð atvinnuleysi 3,9% á innlendum vinnumarkaði sem jafngildir því að 6.233 einstaklingar hafi að meðaltali verið án atvinnu þann mánuðinn, sbr. skýrslu Vinnumálastofnunar um stöðu á vinnumarkaði nr. 10/2013. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 4,4% sem svarar til 4.493 einstaklinga að meðaltali.

Samkvæmt ákvæði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, geta aðrar sérstakar ástæður mælt með leyfisveitingu. Í athugasemdum við 5. gr. frumvarps þess er varð að gildandi 7. gr. laganna, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, er tekið fram að gert sé ráð fyrir að „Vinnumálastofnun verði áfram heimilt að líta til sérstakra ástæðna fyrir ráðningu útlendings við veitingu atvinnuleyfa en þá er við það miðað að þýðingarmikið sé fyrir rekstur atvinnurekanda að fá hlutaðeigandi útlending til starfa tímabundið. Með þessu er ekki átt við ástæður sem lúta að útlendingnum sjálfum eða aðstæðum hans.“

Í erindi kærenda kemur meðal annars fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi óski eftir því að umræddur útlendingur fái heimild til að gegna áfram því starfi sem hann gegni hjá því félagi sem hér um ræðir þar sem ekki hafi tekist að finna annan starfsmann til að gegna starfinu þrátt fyrir leit að slíkum starfsmanni. Ráðuneytið dregur ekki í efa að það kunni að vera til hægðarauka fyrir hlutaðeigandi atvinnurekanda að umræddur útlendingur starfi áfram hjá því félagi sem hér um ræðir. Hins vegar er það mat ráðuneytisins að það verði ekki talið þýðingarmikið fyrir rekstur hlutaðeigandi atvinnurekanda að umræddum útlendingi verði veitt tímabundið atvinnuleyfi hér á landi til að gegna því starfi sem hér um ræðir enda megi ætla að til að gegna slíku starfi sé alla jafna ráðinn ófaglærður atvinnuleitandi þar sem slíkt starf krefjist almennt ekki tiltekinnar sérþekkingar. Að mati ráðuneytisins verður því ekki talið að sérstakar ástæður í skilningi a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, séu fyrir hendi í máli þessu sem mæli með veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Þegar litið er til núverandi aðstæðna á innlendum vinnumarkaði, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, þess að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi ekki óskað eftir aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsmanni af Evrópska efnahagssvæðinu til að gegna umræddu starfi, þar á meðal með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, sem og gagna málsins í heild, er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af Evrópska efnahagssvæðinu sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Með vísan til framangreinds er það því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrði 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, um veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli, séu ekki uppfyllt í máli þessu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. mars 2013, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […], sem er ríkisborgari í Kosóvó, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Ada ehf., skal standa.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum